Fasteignaréttur og eignatjón

Sérfræðingar í fasteignagallamálum

Lögmenn Eignatjóns sérhæfa sig í úrlausn ágreiningsmála um fasteignir fyrir kaupendur og seljendur, húsfélög og byggingaraðila. Ekki hika við að hafa samband.

Um þjónustuna

Eignatjón er traust og framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf vegna galla í fasteignum. Meðal helstu verkefna má nefna hagsmunagæslu fyrir kaupendur og seljendur vegna galla í fasteignum og ráðgjöf fyrir húsfélög og eigendur fjöleignarhúsa.

Starfsfólk hjá Eignatjón eru lögmenn með sérþekkingu þegar kemur að hagsmunagæslu vegna fasteignagallamála, með mikla reynslu í að leggja mat á réttarstöðu aðila, útskýra á mannamáli og veita vandaða ráðgjöf.

Sérfræðingar okkar aðstoða þig meðal annars við:

  • ->fasteignagallamál fyrir kaupendur og seljendur
  • ->ráðgjöf fyrir húsfélög og eigendur fjöleignarhúsa
  • ->leigumál fyrir leigusala og leigutaka
  • ->tryggingamál og samskipti við tryggingafélög
  • ->forkaupsréttarmál og skipulags- og byggingarmál

Ókeypis fyrsta viðtal

Hafðu samband í síma 659-1600 eða á einar@lr.is

Þjónusta

Okkar þjónusta

Við bjóðum yfirgripsmikla lögfræðiþjónustu á sviði fasteignaréttar og eignatjóns.

Fasteignagallamál

Fasteignagallar geta valdið fasteignaeigendum miklu fjártjóni. Mikilvægt er að leita til sérfræðinga þegar grunur er um galla.

Skoda nanar
Fjöleignarhús

Margvísleg álitaefni geta komið upp á milli eigenda fjölbýlishúsa og í húsfélögum.

Skoda nanar
Leigumál

Við veitum leigusölum og leigutökum ráðgjöf við gerð og túlkun leigusamninga.

Skoda nanar
Tryggingamál

Við höfum umtalsverða reynslu af samskiptum við tryggingafélög í fasteignamálum.

Skoda nanar
Forkaupsréttarmál

Lögmenn stofunnar hafa umtalsverða reynslu af ráðgjöf í tengslum við beitingu forkaupsréttar.

Skoda nanar
Skipulags- og byggingarmál

Reglulega koma upp álitaefni um réttarstöðu gagnvart skipulagsyfirvöldum sveitarfélaga.

Skoda nanar
Vinnuferli

Svona virkar ferlið

Skýrt og gagnsætt ferli með aðstoð fagfólks.

1

Fyrsta viðtal án endurgjalds

Áður en til fyrsta fundar kemur er ráðlegt að safna saman öllum gögnum og koma með þau til fundar eða senda rafrænt. Skynsamlegt er að koma með öll gögn sem varða viðkomandi fasteignaviðskipti.

  • ->Söluyfirlit og kauptilboð
  • ->Kaupsamning og afsal
  • ->Samskipti við viðsemjendur og fasteignasala
2

Mat á stöðu og ráðgjöf

Aðgengi að öllum gögnum snemma í ferlinu auðveldar okkur að leggja mat á stöðu þína og veita ráðgjöf um hvort tilefni sé til frekari skoðunar eða ákveðinna aðgerða.

3

Aðgerðir og framkvæmd

Það einkennir gallamál að afar mikilvægt er að bregðast eins skjótt við og kostur er, ella er hætta á að hagsmunir fari forgörðum. Við aðstoðum við sáttaumleitanir, beitingu vanefndaúrræða og málarekstur ef þörf krefur.

Kostir

Af hverju að velja Eignatjón?

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og fagmennsku.

Sérþekking

Þekking á fasteignarétti og eignatjóni

Hraði

Skjót viðbrögð skipta máli í gallamálum

Reynsla

Áratuga reynsla af úrlausn flókinna mála

Algengar spurningar

Spurt og svarað

Algengar spurningar um fasteignagalla, fjöleignarhús, leigumál og tryggingamál.

Hvað er fasteignagalli?

Fasteign telst gölluð ef hún stenst ekki þær kröfur um gæði og búnað sem leiðir af lögum og kaupsamningi, eða ef hún er ekki í samræmi við upplýsingar sem seljandi hefur veitt kaupanda. Dæmi um galla eru rakaskemmdir, leki, mygla, og aðrir byggingarfræðilegir gallar.

Hvað kostar fyrsta viðtalið?

Fyrsta viðtalið er án endurgjalds. Hafðu samband í síma 659-1600 eða á einar@lr.is til að panta tíma. Við metum stöðu þína og veitum ráðgjöf um næstu skref.

Hvaða úrræði eru í boði vegna fasteignagalla?

Ýmis úrræði eru í boði, svo sem beiting stöðvunarréttar, krafa um úrbætur, krafa um afslátt, krafa um skaðabætur eða riftun samnings. Rétt úrræði fer eftir atvikum hvers máls.

Hvað á ég að gera ef ég finn galla eftir fasteignakaup?

Mikilvægt er að bregðast fljótt við. Tilkynna skal seljanda um gallann eins fljótt og auðið er og safna gögnum um gallann. Hafðu samband við okkur til að fá mat á stöðunni og ráðgjöf um næstu skref.

Teymið

Sérfræðingar okkar

Reynslumiklir sérfræðingar sem leggja áherslu á persónlega þjónustu.

Einar Hugi Bjarnason

Einar Hugi Bjarnason

Hæstaréttarlögmaður

Einar Hugi lauk embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands árið 2005 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti 2012.

einar@lr.is
Margrét Þorsteinsdóttir

Margrét Þorsteinsdóttir

Framkvæmdastjóri

Margrét útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1997. Hún hefur mikla reynslu af fjárhagsuppgjörum.

margret@eignatjon.is
Jón Egill Pálsson

Jón Egill Pálsson

Fulltrúi / Laganemi

Jón Egill er laganemi á 3. ári við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

jon@eignatjon.is
Samband

Hafðu samband

Ekki hika við að hafa samband við okkur.

Heimilisfang

Borgartúni 25, 105 Reykjavík

Sendu okkur fyrirspurn

Fylltu út formið og við höfum samband.